Veiðin í Elliðavatni hefst á hverju ári sumardaginn fyrsta en hann var alls ekki í gær. Hópur Pólverja var að veiða í vatninu í gær með stangir að vopni og köstuðu spúninum ótt og títt við brúna yfir Elliðavatn og fóru hvergi.
„Veiðin hefst á sumardaginn fyrsta í Elliðavatni,“ sagði Ingimundur Bergsson hjá Veiðikortinu og það eru orð að sönnu. Það vita flestir ef ekki allir veiðimenn.
Svo virðist vera sem sumum sé alveg sama um veiðitíma og reglur, síðasta sumar var komið af veiðimanni í fossinum en veiðivörðurinn stoppaði það umsvifalaust.
Í gær var þessi hópur veiðimanna að veiða í Elliðavatni og enginn stoppaði veiðiskapinn. Svona lagað gengur ekki. Það verður að fara eftir lögum og reglum. Menn verða að vita sinn vitjunar tíma.