,,Veiði 2019 er komið út og það er stærra og glæsilegra en nokkru sinni fyrr,“ segir Ólafur Vigfússon í Veiðihorninu í samtali. Nýja blaðið var að koma úr prentun fyrir nokkrum dögum.
Að sögn Ólafs hefur Veiðihornið hefur gefið út blaðið Veiði síðan 2012 og er því hér á ferð 8. Árgangur.
Blaðið hefur betur stækkað ár frá ári og er nýja blaðið 128 síður og prentað á vandaðan pappír. Veiði 2019 er gefið af og dreift í Veiðihorninu.
Veiði 2019 endurspeglar stóran hluta vöruúrvals Veiðihornsins með myndum, vörulýsingum og verði í bland við fróðleik.
,,Afar mikið er lagt í Veiði og eru veiðimenn og viðskiptavinir jafnan farnir að spyrja um nýtt blað strax upp úr áramótum,“ segir Ólafur í lokin.