,,Ég var að byrja rétt áðan en það er fiskur að vaka um allt,“ sagði Antony Evans Berry er við hittum hann við Elliðavatn. Þar voru margir að veiða í gær um helgina enda verðurfarið gott og veiðivonin töluverð.
,,Þetta er fínt að taka nokkur köst hérna með fluguna,“ sagði Antony og hélt að áfram að kasta flugunni, fiskurinn vakti en var kannski ekki í miklu tökustuði. En hann var þarna þó hann tæki ekki og við Meðalfellsvatn voru margir að veiða líka seinni parinn í gær, veiðimenn á öllum aldri.
Fyrir neðan bæinn Meðalfell voru allavega sex veiðimenn að kasta og fleiri víða um vatnið, veiðimenn eru vakna eins og fiskurinn sem vakti um allt vatnið. Bara að fá hann til að taka.
Mynd. Antony Evans Berry við Elliðavatn í gær með flugustöngina af vopni. Mynd María Gunnarsdóttir.