,,Ég er með grunnkennslu í fluguköstum og einnig fyrir veiðimenn aðeins lengra komna,“ sagði Reynir M. Sigmundsson veiðimaður og leiðsögumaður á Akranesi, er við slógum á þráðinn til hans í vikunni.
,,Viðtökurnar hafa verið mjög góðar og er ég búin að halda tvö námskeið. Þetta eru fimm manns í hverjum hóp, bæði af ungum og upprennandi veiðimönnum og uppí svolítið lífsreyndari veiðimenn. Það gaman að sjá að það eru ungir krakkar sem vilja læra að kasta flugunni. Námskeiðið er lagt þannig upp að það eru tvö kvöld á hvern hóp. Fyrra kvöldið er kastað á grasi og seinna er kastað á vatn, þetta heppnaðist vel,“ sagði sagði Reynir sem getur ekki beðið eftir því að veiðitíminn byrji eins og fleiri veiðimenn. Kannski ekki mjög skrítið.
Mynd. Köstin æfð fyrir sumarið. Mynd Reynir M.