fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024

Guðrún E. Thorlacius hlýtur gullmerki SVFR í dag

Gunnar Bender
Föstudaginn 17. maí 2019 13:18

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stangaveiðifélag Reykjavíkur fagnar 80 ára afmæli sínu dag, föstudaginn 17. maí. Tímamótanna verður minnst með margvíslegum hætti, m.a. með hátíðarfundi í Baðstofu iðnaðarmanna þar sem félagið var stofnað árið 1939. Á fundinum verður félagsmaður nr. 1, Guðrún E. Thorlacius, sæmd gullmerki félagsins.

Guðrún er fædd árið 1925 og gekk í Stangaveiðifélagið 16 ára gömul, árið 1941. Hún veiddi lengi vel með föður sínum, sem var einn af stofnendum félagsins og tíður gestur í Elliðaánum, oft með dótturina sér við hlið. Það má því segja, að strax þá hafi réttur tónn verið sleginn, því enn í dag veiða kynslóðir veiðimanna saman í Elliðaánum.

Veiða þar ýmist maríufiska eða njóta ævikvöldsins í þeirri náttúruparadís sem Elliðaárdalurinn er. Á fundinum verður afhjúpuð veiðifluga, sem hönnuð var og hnýtt í tilefni afmælisins. Hátíðarfundurinn er öllum opinn.

AFMÆLISVEISLA Í ELLIÐAÁRDALNUM

Síðdegis á föstudag verður efnt til afmælisveislu í Elliðaárdalnum, þar sem boðið verður upp á veitingar og skemmtun í anda tilefnisins. Sýnd verður heimildarmynd um stangveiði sem SVFR lét gera árið 1949, boðið verður upp á kastsýningu og fræðslu um fiskirannsóknir, efnt verður til veiðileyfahappdrættis, seiði og fiskar úr Elliðaánum verða til sýnis og gengið verður með ánni.

Afmælisfluga SVFR verður til sýnis og sölu og afmælisútgáfa Veiðimannsins – tímariti SVFR – verður opinberuð. Hoppukastali fyrir börn verður á staðnum, afmælisterta og pylsur. Afmælisveislan stendur frá 17 til 19 og félagið vonast eftir því að sjá sem flesta, bæði félagsmenn og annað áhugafólk um veiði.

FÁMENNT Í FYRSTU, EN NÚ FJÖLDAHREYFING

Stofnfélagar SVFR voru 48 talsins, þann 17. maí 1939. Markmið þeirra var m.a. að vernda Elliðaárnar fyrir aðstaðjandi ógn vegna framkvæmda og ósæmilegra veiðiaðferða.

Raunar var stangveiði Íslendinga á laxfiskum þá fátíð, en erlendir veiðimenn voru farnir að sækja mjög til Íslands í veiði og náttúruupplifun sem margir Íslendingar áttu eftir að uppgötva. Í dag er Stangaveiðifélag fjöldahreyfing og félagsmenn eru um 2.500 talsins.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Samtal Liverpool við Slot virkt

Samtal Liverpool við Slot virkt
Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Gunnar sat 12 spora fund í morgun þegar eitt vakti áhuga hans – „Ég er sjálfur sekur“

Gunnar sat 12 spora fund í morgun þegar eitt vakti áhuga hans – „Ég er sjálfur sekur“
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Sjáðu athyglisvert myndband sem Óli Kalli birti – „Bara ef ég fæ að vera með Gylfa“

Sjáðu athyglisvert myndband sem Óli Kalli birti – „Bara ef ég fæ að vera með Gylfa“
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Selfoss lánar Gary Martin til Ólafsvíkur

Selfoss lánar Gary Martin til Ólafsvíkur
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Ten Hag sagður á útleið – Þetta var síðasti naglinn í kistu hans

Ten Hag sagður á útleið – Þetta var síðasti naglinn í kistu hans