,,Við erum búnir að fá þrjá fiska,“ sögðu þeir félagarnir Davíð Hreiðarsson og Eyþór Bergvinsson er blaðamaður og ljósmyndari hitti þá við Elliðaárnar í gær en veiðin hefur gengið ágætlega í ánni það sem af er og margir fengið vel af silungi á ýmsar flugur.
,,Þetta er góð upphitun fyrir sumarið og svo förum við á urriðasvæðið í Laxá í Þingeyjarsýslu og svo nokkrar góðar laxveiðiár,“ sögðu þeir félagar við Elliðaárnar og héldu áfram að veiða. Fiskurinn var að stökkva rétt hjá þeim.
Mynd. Davíð Hreiðarsson og Eyþór Bergvinsson við Elliðaárnar í gær. Mynd María Gunnarsdóttir.