,,Það er kuldalegt hérna í Mývatnssveitinni en við byrjum veiðina í morgun og verður spennandi að sjá hvernig veiðin gengur,“ sagði Bjarni Júlíusson á veiðislóðum í Mývatnssveitinni. En urriðasvæði opnaði árla morguns.
,,Ég oft verið hérna í opnuninni hér á svæðinu með strákana mína en þetta er mesta vetrarveður sem við höfum fengið hérna í opnun,“ sagði Bjarni sem samt var verulega spenntur að renna í kuldanum.
Það á kannski ekki að hlýna mikið á morgun en einhvern tímann hlýnar og þá ætti urriðinn að taka betur. Samkvæmt spám eru kuldadagar í kortunum fyrir norðan á næstunni.
Mynd. Kuldalegt í gærkveldi í Mývatnssveitinni. Mynd Bjarni.