,, Veiðin byrjaði vel, 24 laxar komu á land á fyrsta degi í Þjórsá, og hellingur slapp af,, sagði Harpa Hlín Þórðardóttir. Óhætt er að segja að byrjunin hafi varla gata orðið betri og gefur vonandi fyrirheit um veiðina í sumar.
Það sem vekur athygli í þessari byrjun er að fiskurinn er mættur í verulegu magni. Það verður spennandi að fylgjast með framhaldinu.
Með fréttinni fylgja með myndir við opnuna og er ekki annað að sjá en að veiðimenn eru sáttir með árangurinn.