Laxveiðiárnar opna miklu fyrr en venjulega eins og Þverá sem opnaði í dag. Og veiðin gekk vel þar i Brennunni og Þverá. Kjarrá verður opnuð 8.júní. Veiði í Blöndu byrjaði í gærmorgun og fór vel af stað.
,,Áin fór vel af stað og komu 9 laxar á land en áin var erfið eftir hádegi, slýrek og helvíti mikið vatn,“ sagði Reynir M. Sigmundsson sem opnaði ána ásamt fleiri vöskum veiðimönnum.
,,Laxinn er mættur en stærsti laxinn sem veiddist í dag var 93 sentimetrar,“ sagði Reynir ennfremur.
Og laxinn er mættur í Laxá á Ásum, vænir laxar sáust fyrir þó nokkru síðan, svo veiðin gæti byrjað með látum.
Mynd. Það komu 9 laxar á land í Blöndu á fyrsta veiðidegi þessa sumars í ánni í gær. Stærsti laxinn var 93 sentimetra.