,,Það eru engar alvöru rigningar á næstunni, smá skúrir og það minnkar í ánum með hverjum deginum. Við verðum að fá alvöru rigningar svo þetta batni,“ sagði veiðimaðurinn sem á var á leið í fyrsta veiðitúr sumarsins, vopnaður vatnsbrúsa, sem myndi náttúrlega ekki duga neitt í þessum þurrki. Nema væta kverkarnar.
Veiðiárnar opna hver af annarri þessa dagana. Við Elliðaárnar í gær var vaskur hópur veiðimanna að hreinsa ána. Ekki veitti af og þar fannst nú ýmislegt sem ekki átti heima þarna.
Lítið hefur sést af laxi í Elliðaánum ennþá einn og einn lax en hann kemur. En það vantar annað og það er í formi regns, það mætti alveg fara að láta sjá sig sem fyrst.
Mynd. Staðan við Norðurá þessa dagana. Mynd María Gunnarsdóttir.