,,Við vorum að hætta í Jöklu og það gekk bara vel, fengum 21 fisk og misstum nokkra,“ sagði Helgi Héðinsson ferðaþjónustu bóndi í Mývatnssveit er við spurðum um veiðina í Jöklu sem hefur verið að gefa ágæta það sem af er sumri.
,,Stærsti fiskurinn hjá okkur var 94 sentimetri og við vorum að veiða á 8 stangir,“ sagði Helgi um veiðitúrinn.
,,Jökla hefur verið að gefa ágætlega, Breiðdalsá er komin með fyrstu laxana og Hrútafjarðará er kominn með kringum 20 laxa,“ sagði Þröstur Elliðason um stöðina hjá honum í veiðinni.
Mynd. Helgi Héðinsson með flottan lax úr Jöklu.