,,Ég ætlaði að fara með strákana mína að veiða í lax og silung en það er sama hvað hvað maður reynir að fá maðk, það er bara ekki neitt til,“ sagði veiðimaður sem búinn að leita og leita af maðki víða.
,,Fór og gróf líka úti í garði og fann ekki einn einasta. Ég var til í að borga fyrir gott verð, en það var ekki séns að fá maðk. Við fórum því í veiðitúrinn og veiddum á flugu, við fengum í soðið en varla meira,“ sagði veiðimaðurinn enn fremur.
En það er hrikalega erfitt að fá maðka þessa dagana og verðið sem veiðimenn eru að borga fyrir maðkinn er dýrast er 250 krónur stykkið og 80 krónur fyrir silungamaðkinn. En það er ekki hægt að fá neinn maðk sama hvað menn leita. En það er spáð rigningu og við skulum sjá hvað skeður á allra næstu dögum. Flugan er líka bara góð.