,,Við fengum hnúðlax í Miklavatni í Fljótum,“ sagði Guðjón Jóhannes Guðlaugsson í samtali en hnúðlax hefur verið að veiðast á nokkrum stöðum á þessu sumri en mest fyrir sunnan og þá í Soginu.
,,Auk hnúðlaxsins fengum 30 bleikjur og þær tóku spinner, vildu alls ekki fluguna, sama hvað þeim var boðið,“ sagði Guðjón ennfremur.
Bleikjan er að detta inn í Flókadalsá í Fljótum og veiðimenn sem voru þar fyrir fáum dögum sáu torfu af vænni bleikju. Hún var víst ekki í miklu tökustuði. En það kemur.
Mynd. Hnúðlaxinn kominn á land í Miklavatni i gærdag.