,,Það er er enginn rigning í kortunum næstu vikuna,“ segir veðurfræðingurinn og það er hlutur sem maður hefur heyrt ansi lengi. Enda eru árnar margar hverja að vera að engu þessa dagana og enginn rigning til í kortunum.
Og það sem er verra þar sem er vatn lítið er ekki mikið um lax. Þeir eru fáir á ferðinni og annað hvort vel vænir eða smáir 2 til 3 pund. Þetta er skrítin staða. Þó það myndi rigna skipti það einhverju, það eru miklu færri laxar á ferðinni. Kíkjum aðeins á þetta nánar. Tölur segja satt.
Eystri Rangá er á toppnum með 720 laxa, efst síðan kemur Urriðafoss í Þjórsá 600 laxa. svo Miðfjarðará 320 laxa og síðan Ytri Rangá með 300 laxa. Þetta er kannski í lagi.
Síðan eru góðar laxveiðiár með á milli 150 og 200 laxa. Sem er alls ekki gott og eiginlega hamfarir. Laxinn er bara alls ekki skila sér, en auðvitað vantar vatn en það vantar miklu meira, laxa sumstaðar. Það er staðan.
Þetta verður að breytast á næstu dögum annars halda hamfarnir áfram engum til góðs.Við þurfum laxa og steypi rigningu.