,,Ég náði mér í tvo maðka og fékk fisk á þá báða í Elliðaánum. Það er helvíti erfitt að ná í þessa maðka núna,“ sagði veiðimaður sem ég hitti við Elliðaárnar í vikunni og annar var á veiðislóðum þar í gær með einn maðk í poka og hugsaði gott til glóðarinnar að renna maðknum.
Það hefur verið mjög erfitt að fá maðka og þeir kosta sitt. Dýrasta verðið sem heyrst hefur er 250 krónur fyrir stykkið af laxamaðknum og 80 krónur fyrir silungamaðkinn.
Einn veiðimaður sem sagðist hafa verið maðklaus í Veiðivötn fyrir skömmu en það hefi aldrei gerst í 15 ára sögu hans í Veiðivötnum. Hann fékk einhverja sína bestu veiði á ýmsar flugur sem hann hafi aldrei reynt og aldrei dottið í hug að prufa. Þær gáfu feiknavel og flotta fiska