,,Við vorum saman uppá Meðalfellsvatn og fengum fiska en þeir hefðu mátt vera stærri en þetta var allavega fyrir köttinn. Sáum lax stökkva en hann tók alls ekki,“ sagði veiðimaður sem var með son sinn að veiða við vatnið og þeir fengu ágæta veiði.
,,Við vorum í Hlíðarvatni í Selvogi og fengum þar tvær bleikjur, það er gaman að veiða með krökkunum og útiveran er flott fyrir þau, komast úr tölvum smá stund,“ sagði veiðimaðurinn og hélt áfram að kasta flugunni. Fiskurinn var við en tók ekki mikið.
Í Elliðavatni voru þrír ungir veiðimenn og þeir fengu tvo silunga, urriða sem vel var hægt að snæða í kvöldmatinn. Þeir slepptu fisknum aftur. ,,Veiða sleppa,“ sögðu þeir og héldu áfram að veiða.
Það er víða hægt að veiða víða, það er stutt í silunginn og hann getur verið skemmtilegur á færi taki hann á annað borð. Útiveran er góð og veiðivonin er allavega fyrir hendi. Þess vegna er um að gera að reyna. Fátt er betra en útivera og veiðivon.
Mynd. Fátt er skemmtilegra en að renna fyrir silung saman og veiða flottan fisk.