,,Ég var að koma af Ljárskógaheiði og þar var fín veiði og fallegur fiskur,“ sagði Haraldur Reynisson í samtali við Veiðipressuna. Haraldi þykir fátt skemmtilegra en að renna fyrir fisk en hann hefur töluvert veitt vestur í Dölum á hverju sumri.
,,Ég er líka búinn að fara í Laxárvatn sem Veiðikortið gildir i og þar hef ég veitt vel líka,“ sagði Haraldur ennfremur.
Aðrir veiðimenn fóru í Laxárvatn fyrir skömmu og veiddu vel af urriða, þokkalega vænum sem er gaman að glíma við á fluguna. Silungsveiðin hefur víða verið verulega góð og fiskurinn vænn.
Mynd. Haraldur Reynisson tónlistamaður með silung en hann veiðir mikið.