,,Hollið er búið að veiða 17 laxa í Norðurá og það er nýr lax að ganga í ána þessa dagana,“ sagði Birgir Örn Pálmason við Norðurá en vatnið hefur aðeins aukist í ánni. þÞað hefur sitt að segja eftir mjög rólegt sumar. En Norðurá er að detta í 300 laxa núna.
,,Fiskurinn sem Sindri Þór Kristjánsson veiddi og er á myndinni veiddi hann í under taker númer 16 i Bakkahyl og var 80 sentimetra fiskur. Það er gaman hérna við veiðar,“ sagði Birgir Örn ennfremur.
Það er farið að síga á seinni hlutann í veiðinni en fiskurinn er að ganga og vatnið hefur aðeins aukist og allt hjálpar það í þessu bullandi þurrki sem hefur verið í sumar. Allt bætir ástandið núna.
Mynd. Sindri Þór Kristjánsson með laxinn úr Bakkahyl. Mynd Birgir Örn.