,,Þetta er bara meiriháttar að geta farið þarna og veitt á maðk eða stórar túbur, enda mikið af fiski í þau tvö skipti sem ég hef farið. Ég er búinn að panta mér tvo daga næsta sumar,“ sagði veiðimaður þegar Þjórsá bar á góma fyrir skömmu og hann meinti þetta greinilega.
,,Þarna fær maður ákveðna útrás við veiðina,“ bætti hann við og það er margt til í því.
Það hefur gengið vel að selja veiðileyfi á þetta stangarsvæði í ánni en það veiddust þarna 1320 laxar síðasta sumar og 755 sumarið áður, eða ríflega 2000 þúsund laxar.
Margir ætla að renna fyrir fisk þarna á sumri komanda. Enda miklu skemmtilegra að veiða fiskinn á stöng en í net.
Mynd. Lax kominn á land síðasta sumar en það veiddust 1320 laxar þar á svæðinu á stöng. Mynd Stefán.