Flestir veiðimenn þekkja stórlaxahvíslarann Nils Folmer Jorgensen en það eru fáir sem veiða jafn marga stórlaxa á ári hverju og hann. Nils hefur veitt 29 laxa á Íslandi yfir 100 cm og heilan helling af löxum á bilinu 90-99 cm.
,,Það er að verða uppselt á fyrirlesturinn hjá Nils, örfáir miðar eftir,“ sagði Gunnar Örn Petersen er spurðum um fyrirlesturinn hjá Nils sem Íslenska fluguveiðiakademían stendur fyrir. Fyrirlesturinn ber yfirskriftina „Að setja í þann stóra“ og verður haldinn 27. mars næstkomandi. Þar mun Nils kynna gestum veiðiferðir sínar og þeirri tækni sem getur fært þig nær draumafiskinum.
Það er greinilega að margir sem vilja hlýða á Nils. Hann er fróður og lunkinn að setja í stórfiska á hverju sumri.