,,Staðan er allt í lagi við Varmá en ég sá ekki fisk í hylnum sem ég skoðaði,“ sagði veiðimaður sem við heyrðum í en nú eru tvær vikur þangað til að veiði á sjóbirtingi hefst.
Veiðimaðurinn sem við heyrðum í fór austur að Klaustri og þar var önnur staða. Þar á staðan eftir að batna þegar nær dregur veiðitímabilsins.
Eins og áður kom fram er hálfur mánuður þangað til sjóbirtingstíminn byrjar fyrir alvöru. Margir eru orðnir óþreyjufullir og spenntir að hreyfa stangirnar og kasta flugunum. Biðin er að enda innan tíða. Það spáir hlýnandi veðri eftir helgina og það er fyrir öllu. Margir ætla að fara fyrstu dagana og renna.