,,Þetta var meiriháttar kvöld, troðfullt hjá Nils Folmer Jörgens. Þetta var mjög áhugavert hjá honum heilt yfir,“ sagði Gunnar Örn Petersen. Færri komust að en vildu á stórlaxa hvíslrann sem hélt fyrirlestur um stórlaxana í gærkveldi.
Nils hefur verið sérstaklega lunkinn við að veiða þá á hverju ári. Nils hefur veitt 29 laxa yfir 100 cm og helling af löxum á bilinu 90 til 99 cm.
,,Menn voru hressir með þetta en það voru bæði menn og konur sem mættu til að fylgjast með Nils og fræðast hvernig veiða á stórlaxana,“ sagði Gunnar
Mynd. Það var fullt út úr dyrum hjá Nils í gærkveldi í húsakynnum Stangveiðifélag Hafnarfjarðar. Mynd Gunnar P.