Íslenska fluguveiðisýningin verður haldin í annað sinn 14. mars næstkomandi milli kl. 15 og 22:30 í Háskólabíói. Sýningin var haldin í fyrsta sinn árið 2018 og gekk vonum framar. Eins og sést á myndum í viðhengi þá var góð mæting og mikil stemming.
Íslenska fluguveiðisýningin er sjálfseignarstofnun og er öllum fjármunum sem safnast á sýningunni, að frádregnum kostnaði, varið í þágu meginmarkmiðs sýningarinnar sem er að standa vörð um íslenska náttúru og dýralíf með áherslu á vernd og uppbyggingu villtra ferskvatnsstofna, þá einkum lax, og bleikju.
Árið 2018 tókst að safna 650.000 kr. á sýningunni og hefur stjórn sýningarinnar nú þegar veitt Icelandic Wildlife Fund og NASF á Íslandi 200.000 kr. styrk, hvorum sjóði. Sjóðirnir hafa báðir verið öflugir við að vekja athygli á skaðsemi eldis á laxi í opnum sjókvíum og að reyna að sporna við áframhaldandi aukningu á slíku eldi.
Sýningin verður haldin í anddyri Háskólabíós og meðal efnis verður:
– Kynningarbásar fyrir vörur og þjónustu.
– Málstofa um sjókvíaeldi.
– Uppboð á veiðileyfum og veiðivörum.
– Fluguhnýtarar og stangarsmiður sýna listir sínar.
– IF4 kvikmyndahátíðin.
Stofnendur hafa þá framtíðarsýn að sýningin muni efla samfélag veiðimanna hér á landi og stuðla að öflugri umræðu um verndun auðlindar okkar.