,,Já, við ætlum að leyfa vorveiði í Leirvogsá frá 15. apríl til 15. maí og það verða leyfðar tvær stangir upp af Helguhylnum,“ sagði Jóhann Davíð Snorrason hjá Laxá en vorveiði hefur aldrei áður verið leyfð í Leirvogsá. Þetta eru því tímamót hvað það varðar.
,,Það er seldar saman tvær stangir og kostar stöngin 15 þúsund en báðar seldar saman 30 þúsund. Það má bara veiða á flugu og öllum fiski sleppt. Það er mikil áhugi fyrir þessu,“ sagði Jóhann Davíð ennfremur.
Þetta er merkileg tilraun og alveg vel þess virði að reyna þetta.
Mynd. Vorveiði er leyfð í Leirvogsá Í fyrsta skipti og vel þess virði að reyna. Mynd Jóhann.