,Við Gísli vorum búnir ađ berja ánna í allan dag og ekkert gekk og búnir að reyna þær flugur sem voru að gefa samkvæmt veiðibókinni,“ sagði Hafþór Óskarsson sem var á bökkum Leirár í vikunni.
,,Við vorum við það að hætta þegar ég setti Black Ghost undir á veiðistað fjögur og eftir fjögur, fimm köst tók fallegur 60 cm birtingur fluguna. Fiskinum var landað og sleppt eins og reglur segja til. Ég rétti þá veiðifélaga mínum stöngina ( Gísla ) og sagði við hann taktu annan og viti menn eftir ca. 5 köst setti hann í fisk og landaði með stæl sá reyndist 64 cm,“ sagði Hafþór.