,,Við fengum sex fiska í dag og það var bara gott en við hófu veiði um hádegi,“ sagði Stefán Sigurðsson við Leirá í Leirársveit um fyrsta daginn í ánni. Þrátt fyrir kulda og trekk byrjaði veiðin víða ágætlega. Vetur konungur léti svo sannarlega finna fyrir sér í upphafi þessa veiðitímabils.
,,Við fengum flotta veiði í Litluá og fiskur víða um ána,“ sagði Helgi Jóhannesson, er við spurðum stöðuna á svæðinu. Og við Varmá var Halldór Gunnarsson ásamt fleiri vöskum veiðimönnum sem fengu fína veiði en líklega hafa veiðst um 30 fiskar í ánni í dag.
,,Auðvitað er þetta della en maður hefur gaman af þessu,“ sagði veiðimaður við Vífilsstaðavatn og honum var bara bara kalt.
Mynd. Harpa Hlín Þórðardóttir og sonurinn Matthías með flottan fisk úr Leirá fyrsta daginn.
Mynd. Stefán Sigurðsson með hann á í Leirá.