Það er aðeins farið að vora við Norðurá í Borgarfirði en nú eru sex vikur þangað til laxveiðin hefst í ánni. En á mynd dagsins sem var tekin við Norðurá um páskana sést að það er mikið vatn í ánni þessa dagana.
En fyrstu laxarnir gætu farið að skríða upp Hvíta þessa dagana. Bið veiðimanna styttist verulega með hverjum deginum.
Mynd. María Gunnarsdóttir.