,,Já, fyrsti laxinn er kominn í Laxá í Kjós,“ sagði Bubbi Morthens í morgunsárið en hann hefur núna í nokkur ár séð fyrstu laxana í ánni enda duglegur að fá labbitúr með ánni og skoðar veiðistaðina neðarlega.
Þegar reyndum að ná í hann til að fá að vita hvar laxinn laxinn hafi sést var Bubbi rokinn, líklega æfing eða eitthvað annað sem beið kappans.
Þetta er yfirleitt á þessum tíma sem fyrsti laxinn sést. Og fyrstu laxarnir sjást frá svæðinu frá Laxfossi og niðri Kvíslarfoss. En það er gott að sjá í ána þessa dagana enda áin ekkert mjög vatnsmikil.
Fyrstu laxarnir eru á leiðinni uppí Norðurá og Þverá í Borgarfirði þessa dagana. Þeirra tími er líka kominn þar.
Mynd. Bubbi Morthens er búinn að sjá fyrsta laxinn í Kjósinni.