Silungsveiðin byrjar víða með ágætum þessa dagana og fiskurinn virðist vera vel haldinn eftir veturinn. Í Heiðarvatni var flott veiði fyrstu dagana og það sama má segja um Hlíðarvatn í Selvogi, mokveiði fyrstu klukkutímana.
,,Já, veiðin gengur vel hjá okkur en við fengum í Hlíðarvatni 41 fisk, ég og sonurinn,“ sagði Róbert Rósmann, er við heyrðum í honum.
,,Sonurinn Magni Máni fermdist fyrir skömmu og veiddi hann sína fiska á þurrflugu, Black Gant. Þetta var skemmtilegur veiðitúr,“ sagði Róbert ennfremur.
Byrjunin lofar góðu í Hlíðarvatni í Selvogi eins og víða í vötnum landins.
Mynd. Frábær veiði úr Hlíðarvatni í Selvogi , Magni Máni Rósmann við veiðina.