,,Þetta er meiriháttar byrjun hérna í Elliðaánum og flottir laxar,“ sagði Jón Þór Ólason formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur þegar árnar opnu í morgun með stórfiskum á 80 ára afmælisári félagsins.
Það var fjölmenni en meðal þeirra voru, Bjarni Júlíusson, Árni Friðleifsson, Ingimundur Bergsson Karl Lúðvíksson, Bjarni Brynjólfsson, Ragnheiður Thorsteinsson, María Gunnarsdóttir, Einar Falur, Guðmundur Guðjónsson, Eiríkur Hjálmarsson, Bjarni Brynjólfsson, Hrannar Pétursson, Jón Þ. Einarsson, Eiríkur Þór Hafdal, Ólafur Finnbogason, Ásgeir Heiðar, Bjarni Bjarnason og Sigþór Gunnlaugsson svo einhverjir séu nefndir til sögunnar.
Flott opnun, flottir fiskar og byrjunin lofar góðu í Elliðaánum þetta sumarið, fiskurinn er að mæta einn af öðrum og það er það er þarf þessa dagana.
Myndir: María Gunnarsdóttir.