,,Veiðin gekk vel í Blöndu. Veiðiferðinni þangað lauk í gær, fengum 11 laxa, fullt að gerast hjá okkur,“ sagði Jói Fel sem var að koma úr Blöndu með 11 laxa en Blanda er komin með með um 150 laxa þessa dagana.
,,Við kláruðum í gær og þetta var allt tveggja ára lax. Gamli Blöndulaxinn er kominn aftur og það er frábært,“ sagði Jó Fel hress með veiðitúrinn.
Laxveiðin togast áfram þessa dagana. Hérna fyrir sunnan þarf miklu meiri rigningu en hún kemur vonandi á allra næstu dögum. Vonandi.
Mynd. Jói Fel með næstum einn 100 cm. lax úr Blöndu.