,,Feiknalega góð veiði hefur verið í Köldukvísl og Tungnaá á hálendinu sem eru í flóru Fish Partner,“ sagði Gunnar Örn Petersen við spurðum um veiðistöðuna í Köldukvísl og Tungnaá núna á miðju sumri. Silungsveiðin hefur gengið víða vel þetta sumarið og margir fengið flotta fiska víða um land.
,,Yfir 3.500 fiskar, bleikjur og urriðar, eru komnir á land í sumar og hafa margir dagar gefir yfir 100 fiska. Þó púpan sé sterkust hefur þurrflugan verið að gefa vel undanfarið,“ sagði Gunnar Örn ennfremur.
Á meðfylgjandi mynd má sjá Chris Hanson með eina glæsilega úr Tungnaá.