,,Það veiddist einn lax og það var séra Gunnlaugur Stefánsson sem veiddi hann í Sveinshylnum. Fiskurinn tók rauða franses og var 80 sentimetrar,“ sagði Þröstur Elliðason við Breiðdalsána í gærkveldi en frekar kalt var þar um slóðir og hvasst.
En þetta er ekki í fyrsta skiptið sem presturinn veiðir fyrsta fiskinn í Breiðdalsá á tímabilinu og leikur það ennþá eftir núna.
,,Það var erfitt að sjá hvort eitthvað væri af fiski, svo hvasst,“ sagði Þröstur ennfremur. Jökla hefur gefið 11 laxa en Hrútafjarðará, bara bleikjur ennþá. Lax hefur sést við ána eins og sást á frægu myndbandi sem var tekið við ósa hennar um daginn, laxar að reyna að komast upp ána. Það spáir rigningu í vikunni.
Mynd. Séra Gunnlaugur Stefánsson með fyrsta laxinn úr Breiðdalsá. Mynd Sjöfn