fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

Eystri Rangá trónir í efsta sætinu

Gunnar Bender
Mánudaginn 22. júlí 2019 09:09

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Komnar eru nýjar veiðitölur á vef Landsambands Veiðifélaga. Samantektin er frá veiði í lok síðasta miðvikudags 17. júlí síðastliðinn.  Þó viðvarandi þurrkatíð og sólbjartir dagar hafi ráðið ríkjum vikum saman og hamlað veiði þá náði smá úrkoma í síðustu viku að skila sér í árnar og lífgaði upp á veiði í kjölfarið um tíma. Töluverða úrkomu vantar sumstaðar til að færa vatnsbúskap í gott horf en einhver rigning er í kortunum næstu daga. Vonandi skilar sú væta sér ekki aðeins ofan í þurran jarðveg heldur einnig í betri vatnsbúskap sem víða er enn bágborinn.

Eystri-Rangá er komin í fyrsta sæti með 686 laxa eftir mjög góða veiðiviku sem skilaði 281 löxum. Á svipuðum tíma í fyrra höfðu veiðst 555 laxar og er veiðin nú 131 laxi meiri. Veiði gengur vel og aðstæður ágætar.

Í öðru sæti er Urriðafoss í Þjórsá sem hefur verið efst á listanum vikum saman en þurfti að víkja fyrir Eystri-Rangá eftir veiði síðustu viku. Veiðin er komin í alls 560 laxa og gaf vikuveiðin 58 laxa.

Í þriðja sæti er Miðfjarðará sem er komin með alls 307 laxa og skilaði síðasta veiðivika 105 löxum.

Í fjórða sæti er Ytri-Rangá þar sem veiðin er komin í 291 lax og skilaði veiðivikan 127 löxum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 klukkutímum

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Byrjunarlið Brighton og Manchester City – Enginn Haaland

Byrjunarlið Brighton og Manchester City – Enginn Haaland
Fókus
Fyrir 9 klukkutímum

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum
Pétur Einarsson látinn
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun
Fókus
Fyrir 12 klukkutímum

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“