,,Við erum búnir fara í nokkra veiðitúra, ég og sonurinn,“ sagði Anthony Evans Berry er við spurðum um veiði á síðustu vikum en þeir fóru í Búðará, Þingvallavatn og síðan Gilsholtsvatn og þeir fengu fiska á öllum stöðum.
,,Fengum góðar bleikjur á tveimur stöðum sem við fórum á. Allt góðir fiskar og einn urriða á einum. Sonurinn hefur gaman af veiðiskapnum eins og ég. Honum finnst allavega skemmtilegt að láta taka af sér myndir með aflann sagði Anthony ennfremur um veiðiskapinn.
Silungsveiðin gengur bara víða vel þessa dagana öfugt við laxveiðina. Og silungurinn virðist vera vænn og vel haldinn í mörgum vötnum landsins.
Christofer Róbert með flottan urriða úr Gílsholtsvatni.