,,Það eru nokkrar bleikjur hérna en flestar litlar. Það er ein og ein væn hérna rétt fyrir neðan i hylnum,“ sagði María Gunnarsdóttir sem var á veiðislóðum á Vatnasvæði Lýsu fyrir nokkrum dögum. En veiðisvæðið hefur heldur betur verið stækkað á Lýsunni og ná niður í ós eftir 10 ára lokun.
,,Við höfum aldrei veitt hérna áður en þetta er skemmtilegt svæði. Höfum aðeins séð fiska en þeir eru tregir ennþá. Fyrr í sumar fórum við í Gljúfurá í Húnavatnssýslu og förum þangað seinna í sumar. Já, veiðin svo fjölbreytt,“ sögðu tveir ungir veiðimenn sem köstuðu flugunni fimlega á svæðinu en fiskurinn ekki í tökustuði.
,,Það er bara kominn einn lax á land en veiðimenn hafa séð laxa víða um svæðið,“ sagði Þór Fannberg Gunnarsson veiðivörður um stöðuna á svæðinu þegar spurt var um laxinn. En mikið hefur veiðst af silungi, stórum og smáum.
Myndir. Frá Vatnasvæði Lýsu fyrir skömmu. Myndir G.Bender