,,Veiðin gekk vel í Hólsá og fengum við flotta veiði, laxa og silunga,“ sagði Axel Ingi Viðarsson sem var að koma úr ánni. Veiðin hefur gengið ágætlega þarna í sumar og er flott ennþá.
,,Vignir Sigursveinsson, skipstjóri, var að landa bolta sjóbirtingi en fiskurinn var 14 pund og þetta var barátta sem stóð yfir í næstum 20 mínútur. Fiskurinn veiddist á spúnn og þetta var hörku löndun. Við misstum marga en fengum á tveimur dögum 10 laxa og sjóbirtinga. Þetta var gaman en strákarnir eru ennþá að veiða enda töluvert fjör þarna,“ sagði Axel Ingi ennfremur um veiðina.
Mynd. Vignir Sigursveinsson, skipstjóri, með stóra sjóbirtinginn. Mynd Axel Ingi