,,Síðasta vika var góð í Jöklu það veiddust um 100 laxar. Við erum bjartsýnir á gott framhald en öflugur smálax er að ganga þessa dagana í árnar,“ sagði Þröstur Elliðason er við spurðum um veiðiárnar hjá Strengjum. En það styttist í yfirfallið í Jöklu sem verður innan fárra daga.
,,Það eru komnir 250 laxar á land í Jöklu og það er bara gott. Hrútafjarðará er komin yfir 100 laxa og hollið sem var núna veiddi 33 laxa á tveimur dögum. Það rigndi aðeins og það hleypti lífi í ána,“ sagði Þröstur ennfremur.
En veiðitölurnar víða er ekki uppá marga fiska. Þegar ekki rignir mánuð eftir mánuð er ekki von á góðu, það veit hver heilvita maður.
Mynd. Hann er á í Jöklu en síðasta vika gaf um 100 laxa.