,,Það er mikið af laxi hérna í hylnum, hellingur,“ sagði Tómas Skúlason leiðsögumaður þegar hann renndi yfir Efri-Brúarhylinn í Haukadalsá í dag.
Hylurinn er smekkfullur af laxi en þeir eru tregir að taka agn veiðimanna þessa dagana og eiginlega ótrúlegt að ekki hafi veiðst nema 125 laxar í ánni í sumar. Því fleiri staðir í ánni hafa að geyma mikið af fiski, ekki einn hylur heldur miklu fleiri hyljir.
,,Það er mikið af fiski hérna og ég missti lax hérna í gær,“ sagði Kristin Edwald og hélt áfram að kasta flugunni en fiskurinn var ekki í neinu tökustuði. Hann hafði engan áhuga en ef það færi að rigna duglega færi allt á fleygiferð við ána og fiskurinn færi að tala flugur veiðimanna. Þá yrði veisla sem fáir vildu missa af.
Mynd. Flugunni kastað fyrir Haukadalsá í gær en laxinn var tregur en nóg af honum. Mynd G.Bender