,,Það er rétt að Laxá sem leigir Blöndu og Svartá af okkur hefur sagt upp samningi þar að lútandi,“ sagði Sigurður Ingi Guðmundsson formaður veiðifélag Blöndu og Svartár í samtali við Veiðipressuna.
Sigurður Ingi sagði ekki langt síðan að þetta hefði verið ljóst. Hann sagði að framhaldið kæmi í ljós en menn hefðu í nógu að snúast þessa dagana í heyskap.
Blanda hefur gefið 550 laxa það sem af er veiðitímabilinu sem er töluvert minna en á sama í fyrra. Verður fróðlegt að sjá hvað gerist með Blöndu og Svartá hvað leigumálin varðar.
Mynd. Einn af fyrstu löxum sumarsins komin á land í Blöndu.