fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Pressan

Er flokkurinn að refsa henni fyrir hreinskilni hennar um fjölda bólfélaga?

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 7. ágúst 2018 08:22

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eins og DV skýrði nýlega frá þá steig danska stjórnmálakonan Anahita Malakians nýlega fram á sjónarsviðið og hratt herefðinni #Over10 úr vör. Með því vildi hún vekja athygli á þeim mun sem kynin sæta þegar kemur að umræðunni um fjölda kynlífsfélaga. Körlum sé hrósað fyrir að hafa sofið hjá sem flestum en fyrir konur þyki það sama mjög neikvætt. Af þessu tilefni skýrði Malakians frá því að hún hefði stundað kynlíf með rúmlega 100 körlum.

Hún hefur verið í framboði fyrir Venstre, bæði til þings og sveitastjórnar, og hyggur á framboð í næstu þingkosningum sem verða í síðasta lagi á næsta ári. En nú gæti verið komið babb í bátinn því forysta Venstre hefur nú stigið fram og virðist ætla að sverja Malakians af sér.

„Það er engin skömm í að segja að maður hafi stundað kynlíf með mörgum. Ég hvet mína eigin kynslóð, sem hefur verið virk kynferðislega, til að skýra frá þessu því ef margir gera það þá verður þetta eðlilegra. Unga fólkið sér þá að maður getur alveg verið með fína vinnu, til dæmis sem stjórnmálamaður, þrátt fyrir að hafa sofið hjá mörgum.“

Sagði hún í samtali við BT í síðustu viku.

En um helgina ræddi Claus Richter, ritari Venstre, við fjölmiðla og sagði að Malakians væri ekki í framboði til þings fyrir Venstre og tali ekki á vegum flokksins. Þegar hann var spurður hvort hann væri að leggja áherslu á þetta þar sem flokkurinn væri ekki ánægður með umræðuna um hina rúmlega 100 rekkjunauta hennar, svaraði hann:

„Hún má vera með þær herferðir sem hún vill. Þetta tengist Venstre bara ekki neitt.“

Malakians segist ekki óttast að hreinskilni hennar muni koma í veg fyrir að draumar hennar um pólitískan frama nái fram að ganga.

„Ég hef áður verið í framboði og eitt af því sem ég hef sagt, þegar fólk hefur spurt, hvort ég væri með einhverjar beinagrindur í skápnum er að þær væri ég ekki með nema það væri vandamál að vera vergjarn.“

Martin Geertsen, talsmaður flokksins í jafnréttismálum, segir að það sé ekkert að ákvörðun Malakian um að segja frá kynlífi sínu og að það eigi ekki að hafa áhrif á feril hennar í stjórnmálum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Tæplega helmingur kínverskra stórborga er að sökkva

Tæplega helmingur kínverskra stórborga er að sökkva
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð

Lögreglan skýrir frá óhugnanlegum upplýsingum varðandi morð
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?

Sanna sagan á bak við Netflixþættina Baby Reindeer sem hafa slegið í gegn – Hvað varð um Richard og Mörthu og hver er hin raunverulega Martha?
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Dæmd í fangelsi – Sendi stjörnunni 8.000 bréf á einum mánuði

Dæmd í fangelsi – Sendi stjörnunni 8.000 bréf á einum mánuði
Pressan
Fyrir 4 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig